Skólareglur Selásskóla

Við nemendur Selásskóla: 

  • viljum að öllum líði vel í skólanum
  • höfnum ofbeldi og einelti
  • virðum það að skólinn er vinnustaður okkar allra.
  • mætum stundvíslega í skólann og virðum skipulag skólastarfs
  • sinnum námi okkar samviskusamlega
  • förum vel með öll námsgögn
  • göngum vel um skólann og umhverfi hans
  • sýnum öllum virðingu, kurteisi og tillitssemi
  • hlýðum starfsfólki skólans
  • tökum tillit til annarra í frímínútum
  • höfum með okkur hollt nesti

Nánar um skólareglur

Skólareglur Selásskóla eru unnar með hliðsjón af og í samræmi við 14. grein laga um grunnskóla nr. 91/2008, reglugerð  nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum og verklagsreglur Reykjavíkurborgar um þjónustu við grunnskólanema með fjölþættan vanda.

Í Selásskóla er unnið eftir einkunnarorðunum: Látum þúsund blóm blómstra. Í þessu felst umhyggja fyrir nemendum og ríkur vilji til að styðja sem best við framfarir, þroska og vellíðan þeirra.  Gildi skólans byggja á þessum einkunnarorðum en þau eru virðing, gleði og vinátta. Skólareglurnar eru tengdar gildum skólans og er markmið með þeim að:

  • nemendur geti notið bernsku sinnar og hæfileika í skólastarfi og séu öruggir í öllu starfi á vegum skólans. 
  • stuðla að ábyrgð nemenda á námi sínu, hegðun og samskiptum með hliðsjón af aldri og þroska þeirra.
  • skólasamfélagið allt stuðli í sameiningu að og viðhaldi góðum starfsanda og jákvæðum skólabrag, með áherslu á öryggi, vináttu, heilbrigði, gleði, trausti og virðingu.

Skólareglurnar eru unnar í samvinnu alls skólasamfélagsins, kennara, almennra starfsmanna, nemenda og skólaráðs. Skólastjóri hefur forgöngu um og ber ábyrgð á að skólareglur séu settar og þeim fylgt. Við upphaf hvers skólaárs kynna kennarar nemendum skólareglurnar og ræða mikilvægi þeirra í skólasamfélaginu. Jafnframt eru þær rifjaðar upp yfir skólaárið, eins og þurfa þykir. Foreldrar fá einnig kynningu á skólareglum við upphaf skólaárs.

Samskipti og framkoma

Skólinn er vinnustaður nemenda og eiga þeir rétt á kennslu við sitt hæfi í hvetjandi námsumhverfi í viðeigandi húsnæði sem tekur mið af þörfum þeirra og almennri vellíðan. Allir nemendur eiga rétt á að fá að stunda nám við skólann í friði og öryggi. Allir nemendur eiga rétt á að koma skoðunum sínum á framfæri. 

Nemendur bera ábyrgð á framkomu sinni og samskiptum með hliðsjón af aldri og þroska. Nemendur skulu ávallt leitast við að koma fram af prúðmennsku og háttvísi. Nemendum ber að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks skólans í öllu því sem skólann varðar, fara eftir skólareglum og fylgja almennum umgengnisreglum í samskiptum við starfsfólk og skólasystkini. Allt ofbeldi hvort sem er með orðum eða gjörðum er ekki samþykkt.

Verklag um samskipti heimila og skóla er að finna á heimasíðu Selásskóla.

  • Við hrósum fyrir það sem vel er gert og hjálpumst að við að laga það sem miður fer. 
  • Við skiljum engan útundan og segjum frá ef einhverjum er strítt.
  • Við komum fram við aðra eins og við viljum láta koma fram við okkur.

Umgengni innandyra

Nemendum ber að ganga vel um húsnæði og skólalóð, virða þær reglur sem settar eru og fara að fyrirmælum starfsfólks. Nemendum og starfsfólki ber að sýna prúðmannlega framkomu og bera virðingu fyrir öllu umhverfi sínu, eigum sínum og annarra.

  • Við heilsum og kveðjum á hæverskan hátt og sýnum hvert öðru virðingu í orðum og gerðum. 
  • Við göngum ávallt hægra megin í stigum. 
  • Við göngum hljóðlega um skólahúsnæðið.
  • Við gætum þess að það ríki vinnufriður á sameiginlegum vinnusvæðum. 
  • Við bíðum í röð þangað til kemur að okkur. 
  • Við göngum vel um námsgögn og ritföng.
  • Við hengjum yfirhafnir á snaga og röðum skóm snyrtilega í skóhillur.
  • Við notum ekki húfur eða önnur höfuðföt innandyra.
  • Við erum ávallt í sokkum eða inniskóm.

Umgengni í matsal

  • Við göngum í hljóðlátri röð frá skólastofu í matsal.
  • Við göngum hljóðlega inn í matsalinn og berum sótthreinsifroðu á hendur okkar. 
  • Við förum í röð við afgreiðsluna meðan við bíðum eftir því að skammta okkur mat. 
  • Við skömmtum okkur oftast sjálf og pössum að setja einungis það á diskinn sem við ætlum að borða. 
  • Við sýnum starfsfólki ávallt kurteisi og tölum saman í lágum hljóðum. 
  • Við göngum frá eftir okkur, förum með diska, hnífapör og glös á sinn stað. 
  • Sem umsjónarmenn þurrkum við af borðum og setjum hrein glös á borð eða hjálpum til við að ganga frá borðum. 
  • Við biðjum um leyfi hjá kennara/starfsmanni til að fá að fara úr matsalnum. 

Góð hegðun í frímínútum

Samskipti nemenda í útivist skulu einkennast af félagsanda, tillitssemi og virðingu fyrir umhverfi, skólafélögum og starfsfólki. 

  • Við virðum mörk skólalóðarinnar.
  • Við tökum tillit til annarra. 
  • Við komum ævinlega klædd eftir veðri.
  • Við göngum vel um trjágróður og leiktæki. 
  • Ef við verðum vör við að einhverjir eru að brjóta skólareglur snúum við okkur til starfsmanna 
  • Við virðum rétt annarra til að fá að vera í friði. 
  • Við komum strax í röð við okkar inngang þegar skólabjallan hringir. 
  • Við köstum einungis snjó á afmörkuðu leiksvæði. 
  • Við látum reiðhjól, hlaupahjól og annars konar farartæki vera kyrr í frímínútum. 

Nemendur eiga að vera á skólalóð í frímínútum.  Ávallt eru kennarar og aðrir starfsmenn í gæslu í frímínútum og geta nemendur leitað til þeirra ef eitthvað bjátar á.  Boltavöllum er úthlutað eftir ákveðnu kerfi og ber nemendum að virða rétt annarra til notkunar þeirra. Hætta skal leik þegar skólabjalla hringir og fara í röð. Kennari býður nemendum inn úr frímínútum.

Nemendum ber að fara í útivist í frímínútum. Ef nemandi þarf að vera inni af einhverjum orsökum geta foreldrar óskað þess og þurfa að senda beiðni um slíkt til umsjónarkennara. Umsjónakennari sér um að láta skólaliða vita.

Reiðhjól o.fl. – snjóþotur/sleðar – þoturassar

Reiðhjól og (rafmagns)hlaupahjól eiga að vera læst í hjólagrindum og ónotuð á skólatíma, kl. 8:00 – 17:00, nema með leyfi kennara eða skólastjórnenda. Gæta skal þess að hafa allan öryggisbúnað í lagi og muna eftir hjálminum. Þá er óheimilt að nota hjólabretti, hjólaskó og línuskauta á skólatíma. 

Skólinn ber enga ábyrgð vegna skemmda er kunna að verða unnar á hjólunum á skólalóðinni.

Óheimilt er að koma með snjóþotur eða sleða í skólann. Við höfum ekki aðstöðu til að geyma slíka gripi meðan á kennslu stendur. Hins vegar eru svokallaðir þoturassar (rassaþotur) fyrirferðarminni og nemendur mega koma með þá ef þeir merkja þá vel. 

Ferðir á vegum skólans

Skólareglur Selásskóla gilda i öllum ferðum. Nemendur eru fulltrúar skólans í þeim ferðalögum sem farin eru á vegum hans. Þeim ber að hlíta sömu reglum á ferðalögum sem í skólanum. Komist nemandi af einhverri ástæðu ekki með í skipulagðar vettvangs- eða nemendaferðir er honum ætlað að mæta í skólann til annars skólastarfs.

Símar, snjallúr og tölvubúnaður

Nemendum er óheimil notkun farsíma/snjallsíma/snjallúra á skólatíma. Skólatími telst sá tími sem nemendur eru í skólanum samkvæmt stundatöflu. Hafi nemandi farsíma og/eða snjallúr með sér í skólann skal hafa slökkt á þeim og geyma tækin í skólatösku. Skólinn tekur enga ábyrgð á þessum tækjum. Nemendum er óheimilt að koma með peninga í skólann nema nauðsyn beri til. Skólinn tekur hvorki ábyrgð á persónulegum munum né fjármunum.

Tölvubúnaður Selásskóla er eign skólans og fyrst og fremst ætlaður til náms, kennslu, kynninga og annars er samræmist markmiðum skólans.

Hollusta og næring - nesti

Nemendur eiga kost á að fá heita máltíð í hádeginu og er greiðsla fyrir matinn innheimt mánaðarlega fyrirfram. Þeir sem ekki eru í mataráskrift hafa með sér hollt nesti sem þeir neyta í matsal. Nemendur skulu koma með hollt morgunnesti og mælst er til að þeir komi með brauð, ávexti og/eða grænmeti. Nemendur geta ýmist komið með vatn í brúsa eða átt glas í heimastofunni og fengið kalt vatn í skólanum. Aðra drykkir eiga nemendur ekki að koma með í skólann. Sælgæti, sætabrauð, fernudrykkir, safar og gosdrykkir eru ekki leyfðir í skólanum eða í ferðum á vegum hans nema við sérstök tækifæri. Neysla matar og drykkjar er óheimil á göngum skólans.

Stundvísi og skólasókn

Nemendum er skylt að sækja grunnskóla sbr. 3. gr. grunnskólalaga. Góð skólasókn er nemandanum mikilvæg ef námið á að skila árangri. Foreldrum/forráðamönnum ber skylda til þess að börn þeirra stundi skólann af alúð og samviskusemi. Mikilvægt er að nemendur temji sér stundvísi og sýni námi sínu virðingu. 

Verklagsreglur skólasóknar um fjarvistir/seinkomur og veikindi/leyfi er á heimasíðu skólans. 

Skemmdir

Vinni nemendur skemmdir á skólanum eða eigum hans bæta þeir skaðann í samráði við foreldra sína.

Mynd- og hljóðupptökur

Mynd- og hljóðupptökur, ásamt birtingu þeirra, í skólahúsnæði og á skólalóð Selásskóla á skólatíma eru aðeins heimilar með leyfi skólastjórnenda. 

Vináttusáttmáli/Bekkjarsáttmáli

Hver árgangur, ásamt umsjónarkennurum, setur sér sáttmála um vináttu nemenda út frá skólareglum Selásskóla og áherslum uppeldi til ábyrgðar. Vináttusáttmálinn/bekkjarsáttmálinn skal búinn til af nemendum með aðstoð kennara og undirritaður af öllum nemendum bekkjarins. Hann skal svo hanga uppi á áberandi stað í kennslustofu og vera reglulega til umræðu í bekknum.