Nýtt skólaár að hefjast!
Nú er nýtt skólaár að hefjast og hlökkum við til að fá nemendur í hús.
Skólasetning Selásskóla verður mánudaginn 24. ágúst og mæta nemendur í 2. til 7. bekk með forráðamönnum á sal skólans. Skólastjórnendur ávarpa nemendur sem fara síðan ásamt forráðamönnum sínum í stofur með umsjónarkennurum. Í kjölfarið fara fram námskynningar. Nemendur í 5.-7. bekk sitja námskynningar með forráðamönnum sínum en yngri nemendur fara í hreyfistund með íþrótta- og list- og verkgreinakennurum á meðan á námskynningu stendur.
2. og 3. bekkur mæta kl. 9:00
4. og 5. bekkur mæta kl. 10:00
6. og 7. bekkur mæta kl. 11:00
Umsjónarkennarar nemenda í 1. bekk munu hafa samband með nánari upplýsingar um fyrirkomulag.
Kennsla í 2.-7. bekk hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst og í 1. bekk miðvikudaginn 26. ágúst.