Selásskóli 40 ára

Selásskóli 40 ára
Selásskóli 40 ára

Selásskóli fagnar fjórum áratugum

Selásskóli fagnaði 40 ára afmæli með glæsilegri uppskeruhátíð

 

Síðastliðinn fimmtudag ríkti mikil eftirvænting og gleði í Selásskóla þegar þemadögum lauk með opnu húsi og veglegri afmælishátíð. Tilefnið var einstaklega ánægjulegt en um þessar mundir fögnum við því að 40 ár eru liðin síðan skólastarf hófst í Seláshverfi. Þemadagarnir að þessu sinni voru helgaðir þessum merka áfanga þar sem sjónum var beint að sögu skólans og þeim öru breytingum sem hafa átt sér stað í samfélaginu á þessum fjórum áratugum.

Skipulag daganna var með óhefðbundnum hætti þar sem nemendum var skipt upp í hópa þvert á árganga. Þessi vinnutilhögun skapaði gaf nemendum tækifæri á að kynnast og starfa saman að margvíslegum verkefnum. Á opnu húsi á fimmtudaginn, sem stóð yfir á milli klukkan 14 og 16, gafst gestum tækifæri á að skoða afrakstur þessarar vinnu auk þess sem fjölmörg önnur verkefni vetrarins voru til sýnis.

Hátíðin var sannkölluð samfélagshátíð og var dásamlegt að sjá hversu margir lögðu leið sína í skólann. Við fengum til okkar fjölmarga góða gesti, jafnt núverandi nemendur og foreldra þeirra sem og ömmur og afa. Það var einnig sérstaklega ánægjulegt að sjá gamla nemendur og starfsmenn mæta aftur á sinn gamla vinnustað til að fagna með okkur. Þetta voru í alla staði vel heppnaðir þemadagar og frábær afmælishátíð sem sýndi vel hve stolt við erum af starfinu okkar hér í Selásskóla. Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og fyrir að gera þennan dag ógleymanlegan.