Skóladagatal Selásskóla

Teikning af litríkum skólatöskum.

Skóladagatal er gefið út fyrir hvert skólaár. Skóladagatalið sýnir þá daga sem nemendur eiga að vera í skólanum, hvaða daga er vikið frá hefðbundnum skóladegi og hvaða daga nemendur eiga frí. Þú getur bæði náð í þitt eigið gagnvirka skóladagatal og pdf útgáfu af skóladagatalinu til að prenta út.

Samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við Kennarasambands Íslands skulu 180 lögbundnir skóladagar nemenda vera á tímabilinu 20. ágúst til 10. júní. Sérstakir starfsdagar kennara á starfstíma nemenda eru fimm og skulu ákveðnir af skólastjóra í samráði við kennara og með hliðsjón af kjarasamningum. Starfsdagar kennara utan starfstíma nemenda eru 8. 

Hér fyrir neðan er skóladagatal skóla fyrir skólaárið 2026-2027.

 

Náðu í pdf útgáfu af skóladagatalinu

Þú getur náð í pdf útgáfu af skóladagatalinu til að prenta út og hengja upp til dæmis á ísskápinn.

Viltu vera áskrifandi að skóladagatalinu?

Þegar þú ert áskrifandi að skóladagatalinu sérðu breytingar sem eru gerðar á dagatalinu í rauntíma. Þú getur bætt skóladagatalinu við þína eigin dagbók.

Athugaðu að til þess að verða áskrifandi þarftu að afrita slóðina (hægri smella og velja copy link adress). Það er ekki nóg að hlaða niður skránni.